Ný skýrsla frá tölfræðistofnun Evrópubandalagsins, Eurostat sýnir að byggingarkostnaður á Íslandi er yfir meðaltali þess sem er í Evrópulöndunum en samt mikið lægri en hjá nágrönnum okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi.
Kostnaðarvísitalan var 100 að meðaltali. Fyrir Ísland var hún 113 en 163 í Svíþjóð þar sem byggingarkostnaðurinn er hæstur, 142 í Danmörku og 133 í Noregi. Hins vegar var byggingarkostnaður lægstur í austur Evrópu. Byggingavísitalan var aðeins 31 í Makedóníu og 32 í Búlgaríu.
Kostnaðarvísitalan fyrir Ísland er svipuð fyrir hin ýmsu mannvirki. Könnunin var gerð 2005 en var birt nýlega. Sjá nánar á eftirfarandi vefslóð:
Eurostatskýrsla um byggingarkostnað
EE
