Norskur uppfinningamaður hefur sótt um einkaleyfi á steypu sem er þrisvar sinnum sterkari en venjuleg steypa hefur minni CO2 mengun í för með sér og auk þess með minni rýrnun en venjuleg steypa.
Steypan byggist á nýjum náttúrulegum pozzolan Aplitt sem mikið finnst af í Noregi. Pozzolan eru efni sem hvarfast við Calciumhydroxid en það efni myndast við sementshörðnunina. Uppfinningamaðurinn Hallvard Eide ráðgerir að skipta út 80 % af sementinu með Aplitt pozzolaninu. Telur hann notkunarmöguleika helst vera í ýmsar sérsteypur eins og í þéttingar í olíuborholur.
Frétt um steypuna
