www.steinsteypufelag.is
»  Fréttir  »  Verklýsingafundur
Verklýsingafundur
Miðvikudagur, 28. nóvember 2007

Verklýsingafundur Steinsteypufélagsins var góður, skemmtilegur og fræðandi. Fullur salur af fólki hlustaði á fyrirlesara fara á kostum og tók virkan þátt í umræðunum.

Meðal þess sem var rætt var gagnsemi og hættur við staðla, þeir gætu hindrað framþróun og skapandi hugsun. Stefna skyldi að því að skilgreina meir eiginleika steypu frekar en samsetningu. Rætt um vandamál hönnuða að skilgreina og gera kröfur til þeirra þátta sem þeir ekki hefðu komið nálægt og þekktu lítt. Sérstaklega að lýsa verklagi og steypugerð. Stefna skyldi að því að steypuframleiðendurnir kæmu sér upp stöðluðum verklýsingum sem hönnuðir gætu vísað í . Ýmis dæmi um ambögur í verklýsingum voru nefndar.
Sjálfútleggjandi steypa lítur nokkrum öðrum lögmálum en hefðbundin steypa. Það þarf skilgreina aðrar stærðir fyrir þjálni þeirrar steypu. Fyrirlestrarnir munu á næstunni birtast undir skjástikunni “fróðleikur”. EE

Nýlegar fréttir
Gagnlegir tenglar