www.steinsteypufelag.is
»  Fréttir  »  Verklýsingafundur 28.nóv 2007
Verklýsingafundur 28.nóv 2007
Fimmtudagur, 22. nóvember 2007

Næsti fundur Steinsteypufélagsins er um verklýsingar fyrir steypu og verður haldinn miðvikudaginn 28. nóv kl 13 á Grand hótel 4.hæð.

Það eru ekki ný vísindi að engin keðja er sterkari en veikasti hlekkurinn. Í almennri steypuframleiðslu koma margar hendur að; Fylliefnaframleiðendur, sementsframleiðendur, flotefnaframleiðendur, steypustöðvar, steypu¬stjórar, múrarar ofl. Á þessum fundi munum við ræða hlut hönnuða og ástand útboðs- og verklýsinga fyrir steypugerð og steypuvinnu.

Þessar lýsingar hafa í gegnum tíðina verið töluvert gagnrýndar fyrir að vera ekki nógu vandaðar og skrifaðar af nægilegri þekkingu. Niðurstöður nýlegra erlendra rannsókna benda til að þessi gagnrýni eigi við rök að styðjast því skv. þeim má rekja allt að helming steypuskemmda og mistaka til hönnunargalla.

Ýmsar breytingar sem hafa átt sér stað á síðustu árum hafa áhrif á gerð verklýsinganna. Nýjir staðlar hafa tekið gildi, nýjar steypugerðir komið á markað og breytingar hafa orðið á verklagi. Auk þess hafa hugmyndir manna um uppbyggingu verklýsinga verið að breytast.

Það er því algjör skyldumæting fyrir alla sem vinna að gerð útboðsgagna fyrir steypu eða þurfa að vinna eftir þeim, á fund Steinsteypufélagsins um útboðs -og verklýsingar sem haldinn verður á Grand hotel 4. hæð, miðvikudaginn 28.nóvember kl 13:00.

Dagskrá:

13.05-13.10 Setning
Einar Einarsson, BM Vallá, formaður Steinsteypufélags Íslands

13.10-13.40 Hvenær urðu verkfræðingar geldingar ?
Dr Ríkharður Kristjánsson, verkfræðingur IAV

13.40-14.10 Staðlar og reglugerðir um skilgreiningu, framleiðslu, eftirlit og niðurlögn á steypu.
Karsten Iversen, tæknifræðingur, VGK Hönnun

14.10- 14.40 Steypuframleiðsla og verklýsingar.
Daði Þorbjörnsson , jarðfræðingur, Mest

14.40- 15.10 Kaffihlé

15.10-15.40 Burðarþolseiginleikar og steypukröfur.
Haukur J Eiríksson, verkfræðingur, Hnit

15.40-16.10 Verklýsing fyrir Tónlistarhús og kröfur til fylliefna
Dr Börge Jóhannes Wigum, jarðverkfræðingur, VGK Hönnun

16.10-16.40 Súlpak steypa
Dr Ólafur Wallevik,verkfræðingur, Nýsköpunarmiðstöð Íslands


Þátttökugjald er kr 5000 fyrir félagsmenn 7000 fyrir aðra.
Engrar fyrirframskráningar er krafist

Nýlegar fréttir
Gagnlegir tenglar