www.steinsteypufelag.is
»  Fréttir  »  Bygging danska ríkisútvarpsins (DR) – rifist um ábyrgð á göllum
Bygging danska ríkisútvarpsins (DR) – rifist um ábyrgð á göllum
Mánudagur, 03. desember 2007

Ýmis vandamál hafa komið upp við byggingu fréttahússins fyrir danska ríkisútvarpið. Húsið fór verulega fram úr áætlunum, sprungur hafa komið fram, sig í plötum og gler hefur færst til, en alvarlegast er hvað húsið er óþétt.

Hefur starfsmönnum verið úthlutað teppum til að hafa yfir sér í vinnunni. Verktakinn og hönnuðirnir deila nú um hver beri ábyrgðina. Byggingarstjórinn segir verktakann bera ábyrgðina en hann segir að húsið sé ein stór tilraun sem hann beri ekki ábyrgð á. Nú er unnið að skýrslu sem mun greina frá samskiptaflötunum milli verktaka, eiganda og ráðgjafa og hver hafi gefið upplýsingar til hvers og hvenær. Hún er væntanleg á næstu dögum. EE

Nýlegar fréttir
Gagnlegir tenglar