
Burj Dubai skýjakljúfurinn sem er í byggingu í Dubai er orðinn hæsta bygging í heimi. Hann er nú um 598.5 m hár og því hærri en Taipei 101 skýjakljúfurinn í Taiwan sem er 509 m hár.

Hann er einnig hærri en loftnetin á Sears turninum í Chicago sem eru 527 m há og CN turninn í Toronto sem er 555 m. Burj Dubai telst þó ekki formlega hæsta bygging heims fyrr en hann verður fullbyggður í lok árs 2008. Strangar reglur eru um met og skilgreiningar á hæðum skýjakljúfa. Loftnet teljast ekki með þegar talað er um hæstu byggingar og þeir þurfa að vera fullbúnir og með hæðarskiptingum. CN turninn taldist því ekki hæsti byggingin heldur hæsta mannvirki (“structure”).
Burj Dubai er steinsteypt bygging og það má segja að þróun í steyputækni og dælutækni hafi gert byggingu hans mögulega. Við byggingu hans var t.d. slegið met í lóðréttri steypudælingu 601 m.
Töluverð leynd hvílir yfir hver endanlega hæð Burj Dubai verður en eina sem gefið hefur verið út er að hann verði meira en 700 m hár.
ee
