www.steinsteypufelag.is
»  Fréttir  »  Reykdrepandi sement
Reykdrepandi sement
Mánudagur, 10. desember 2007

Ítalski sementsframleiðandinn Italcementi hefur sett á markað sement sem þeir segja að eyði reyk. Enrico Borgarello yfirmaður rannsókna og þróunar hjá fyrirtækinu segir að ef mengandi efni eins og brennisteinsoxíð ofl komast í samband við sementið breytist þau í meinlausustu efni sem hreinsist burt með regnvatni.

Fyrirtækið segir að ef 15 % af yfirborði Milanoborgar væri þakið sementinu myndi loftmengun minnka um 50%.
En Thomas Cahill, loftsérfræðingur við Kaliforníu háskóla varar við að þetta sement sé ekki lækning við mengun þó það geti gefið jákvæða niðurstöðu í afmörkuðum tilfellum EE

Nýlegar fréttir
Gagnlegir tenglar