Í París hafa verið í gildi strangar hæðartakmarkanir á hús. Árið 1977 voru settar reglur um að hæstu hús í miðbænum mættu vera mest 25 metrar á hæð og 37 metra á öðrum stöðum í París. En nú hefur borgarstjórinn í París, Bertrand Delanoe með stuðningi Sarkozy forseta komið fram með skipulagstillögur sem innihalda turna sem eru á hæð við Canary Wharf í London.
Þetta er þrátt fyrir að 60% Parísarbúa séu sammála hæðartakmörkuninni.
“Hvers vegna ætti París að snúa bakinu í þá skapandi bylgju í húsagerðarlist sem hefur skolað yfir aðrar borgir.” Spyr Delanoe borgarstjóri. http://Grein í Timesonline
ee
