www.steinsteypufelag.is
»  Fréttir  »  Steinsteypudagurinn 2008- veisla fyrir byggingariðnaðarinn
Steinsteypudagurinn 2008- veisla fyrir byggingariðnaðarinn
Fimmtudagur, 14. febrúar 2008

Steinsteypudaginn 2008 er með nokkru öðru sniði en undanfarin ár því dagskráin er mun fjölbreyttari og höfðar til fleiri. Dagskránni er einnig skipt niður í þemu þannig að auðveldara sé fyrir fólk sækja afmarkaða hluta dagsins, þótt að sjálfsögðu sé mælt með að sitja allan daginn.

Erlendu fyrirlesarnir eru lýsandi fyrir fjölbreytni dagsins:

1. Grafton arkitektar,
- Shelley McNamara og Yvonne Farrel hafa fengið fjölda viðurkenninga í heimalandinu Írlandi. En vinningstillaga þeirra í samkeppninni um Luigi Bocconi háskólann í Milano beindi alþjóðlegri athygli að þeim og írskum arkitektúr í fyrsta sinn. Þær ætla að segja okkur frá hönnun og byggingu háskólans sem er 45000 m2 að stærð með kennslustofur fyrir 2500 nemendur og skrifstofur fyrir 1000 kennara.

2. Pfeifer
- Pfeifer er þýskt fyrirtæki sem stendur mjög framarlega í stál+steypuiðnaðinum í dag. Þeir munu fjalla um prófanir og niðurstöður varðandi sameiginlegt álag stálvíra í samteinginum (Testing and Results of Shear Loading on Wire Rope Connecting Systems). Þetta er án efa erindi sem margir burðarvirkjahönnuðir ásamt einingaframleiðendum gætu nýtt sér.

3. Sven Thelandersson
Sven kemur frá háskólanum í Lundi og mun tala um burðarþolshönnun mjög hárra bygginga með sérstakri áherslu á steinsteypu sem byggingarefni. Vandamál sem varða láréttan stöðugleika, með áherslu á dýnamískt álag eins og vindálag og öryggisstuðla. Einnig mun hann fjalla um framleiðsluhliðina, eldvarnir oþl. Ný og gömul dæmi verða tekin hvaðanæva úr heiminum.

Dagskrána í heild er að finna í meðfylgjandi skjali.
Dagskrá Steinsteypudags

Nýlegar fréttir
Gagnlegir tenglar