www.steinsteypufelag.is
»  Fréttir  »  Sprungur í minnismerkjunum um helförina í Berlín
Sprungur í minnismerkjunum um helförina í Berlín
Miðvikudagur, 26. mars 2008

Berlin.jpg

Um 400 sprungur hafa myndast í þeim 2711 steypuklumpum sem reistir voru fyrir tveimur árum til minningar um helför gyðinga. Steypueiningarnar hafa vakið mikla athygli steypuunnenda og annarra gesta Berlínar og um 3 milljónir manna koma og skoða minnismerkin árlega. Hvert þeirra er 95 sentimeter á breidd, 2.38 metra langt og allt að 4,7 metrar á hæð. Upplýsingamiðstöð um helförina er undir minnismerkinu. Þó sprungurnar hafi vakið áhuga einhverra og jafnvel áhyggjur er hönnuðurinn Eisenman, 72, ekki áhyggjufullur...

...og segir sprungurnar hluta af eðli steypunnar: “Þegar þú byggir eitthvað sem á eftir að sitja úti í rigningu, sólskini og frosti muntu fyrr eða síðar fá vandamál, og sérstaklega í veðurfari eins og í Berlín” . EE
sprungur íBerlin.jpg

Nýlegar fréttir
Gagnlegir tenglar