Áætlanir SÞ um að safna allri starfsemi sinni í Danmörku á einn stað á Marmormolen á Österbro og byggja þar m.a. 140 m háhýsi og hjólabrú í 65 m hæð, hafa leyst úr læðingi miklar umræður.
Sömu aðilar og börðust gegn háhýsum á Kröyers Plads á Christianshavn fyrir nokkrum árum hafa aftur risið upp úr stólunum. “Allir byggingaraðilar sem hafa viljað byggja stórbyggingar á síðustu árum hafa sagst vilja byggja einkennishús fyrir Kaupmannahöfn en það sýnir sig venjulega að þeir eru aðeins að byggja fyrir sjálfan sig” segir Knud Josefsen frá baráttuhópnum gegn háhýsum á röngum stað. En flestir af lesendum blaðsins Politiken sem hafa tjáð sig um málið hafa verið jákvæðir og telja að með því að vera á móti sé verið að reyna að halda í gamaldags borgar umhverfi sem alls ekki sé í samræmi við þann tíma sem við lifum í. Og borgarstjórinn Ritt Bjerregaard er himinlifandi og telur að svæðið eigi eftir að vera eitt af einkennismerkjum Kaupmannahafnar, svæði með frábærum nútíma arkitektúr. EE
