www.steinsteypufelag.is
»  Fréttir  »  Hönnuður óperuhússins í Sidney níræður
Hönnuður óperuhússins í Sidney níræður
Miðvikudagur, 09. apríl 2008

Sydney opera.jpg
Danski arkitektinn Jörn Utzon er níræður í dag 9.apríl. Hann er best þekktur fyrir hönnun sína á óperuhúsinu í Sidney í Ástralíu en einnig hefur hann unnið hin eftirsóttu Pritzker arkitektaverðlaun (2003) sem litið er á sem Nóbelsverðlaun í arkitektúr.
Jörn Utzon.jpg

Operuhúsið í Sydney er eitt af frægustu húsum í heimi og tákn fyrir Ástralíu þrátt fyrir að það hafi ekki verið opnað fyrr en 1973. Jörn Utzon vann samkeppni um hönnun þess árið 1950 en vegna þess að það var ekki talið verkfræðilega framkvæmanlegt á þeim tíma eyddi hann nokkrum árum í að endurskoða hönnunina og það var fyrst árið 1961 sem lausn fannst á byggingu seglanna í þakinu. Það er byggt úr forsteyptum steypueiningum sem haldið er saman með stálköplum. Ágreiningur varð um kostnað og hönnun innviða hússins sem leiddi til þess að Jorn Utzon sagði sig frá verkinu og aðrir urðu að ljúka því. (8) EE

Nýlegar fréttir
Gagnlegir tenglar