
Danskir tæknimenn eru hrifnir af því að engin hús skyldu hrynja eða menn deyja í jarðskjálftanum sem gekk yfir Suðurland 29.maí. Tine B. Larsen vísindamaður í sveiflufræði við Danmarks og Grønlands Geologiske Undersøgelser (Geus), telur ekki jarðskjálftann einstakan en vill frekar nota það orð um það hvernig Íslendingar tryggðu sig gegn honum.
»Maður verður að taka ofan hattinn fyrir byggingum Íslendinga. Orkan sem var leyst úr læðingi við skjálftann var meiri heldur en kjarnorkusprengjan sem féll á Hirosihima. Við höfum séð fullt af tilfellum þar sem svipaður skjálfti veldur því að þúsundir manna deyja og heilu bæirnir lagðir í rúst vegna þess að byggingarnar hafa ekki staðist skjálftann. « segir Tine B. Larsen.
Hún telur að íslensk hús séu solid byggð næstum eins og neðanjarðarbyrgi og að þau séu hönnuð þannig að þau bæði þoli fyrsta kröftuga skjálftann en geti einnig sveiflast á eftir í langan tíma. EE
http://ing.dk/artikel/88635
