Það er víðar en á Íslandi sem spáð er lækkandi fasteignaverði þvi nú hefur Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn gefið það út að fasteignaverð í Danmörku sé 15% hærra en það ætti að vera. Því sé fasteignamarkaðurinn í Danmörku einn sá viðkvæmasti í heiminum.
Gjaldeyrissjóðurinn telur að það sé sterkt samhengi milli mikils byggingamagns og yfirverðsins á markaðnum í Danmörku. Svipað ásand sé á Spáni og Frakklandi en ástandið sé betra í Bretlandi og Hollandi því þar hefur ekki verið eins mikill vöxtur í byggingframkvæmdum þrátt fyrir hátt verð. Heimild Politiken , EE
