www.steinsteypufelag.is
»  Fréttir  »  Framkvæmdir við Óshlíðargöng hafnar
Framkvæmdir við Óshlíðargöng hafnar
Föstudagur, 19. september 2008

Fyrsta sprenging í Óshlíðargöngum fór fram fimmtudaginn 4. september, að viðstöddum fjölda gesta, m.a. ráðherrum, þingmönnum og sveitarstjórnarmönnum. Óshlíð.bmp

Þann 16. september var búið að grafa 75 metra Bolungarvíkurmegin en jarðgangagröftur hófst í Hnífsdal 17. september. Jarðgöngin sem liggja milli Hnífsdals og Bolungarvíkur eru 5,1 km löng og þeim fylgja um 300 m vegskálar og tvær brýr. Það eru Íslenskir aðalverktakar og svissneska fyrirtækið Marti contractors sem eru verktakar en Geotek og Línuhönnun sjá um eftirlit. EE

Nýlegar fréttir
Gagnlegir tenglar