Á fundi Steinsteypufélagsins um ábyrgð og galla í byggingariðnaði kom margt athyglisvert fram. Fyrirlesararnir voru skemmtilegir og bjuggu greinilega að mikilli þekkingu og hinir fjölmörgu gestir höfðu sig mikið í frammi. Áhugaverður og skemmtilegur fundur....
..Þetta var m.a. rætt:
-Venjulega taka verktakar vel í að lagfæra galla en taka oft góðan tíma í það
-Mikið hefur verið byggt á síðustu árum og gallar eiga eftir að koma fram. En margir verktakar eiga nú í vandræðum svo erfiðara verður að sækja lagfæringar og bætur. Rætt um að koma þyrfti upp tryggingarsjóði sem leysa myndi slík mál líkt og er í Danmörku.
-Fæst bótamál enda fyrir dómi því reynt er að leysa þau með samkomulagi
-Helst er kvartað yfir leka og raka en önnur atriði eru fjölbreytt.
-Helstu kvartanir eru vegna atriða sem einhvern tímann hefðu ekki þótt merkileg en lítið um alvarleg atriði. Þó eru nokkur erlend dæmi um mannvirki sem hafa hrunið.
-Byggingarstjórar gegna miklu hlutverki í byggingaframkvæmdum. Þeir þurfa að hafa tryggingar. Byggingarstjórar mega ekki vera jafnframt meistarar.
-Meistarar virðast bera mikla ábyrgð á verkframkvæmd en ekki er nein trygging í boði fyrir þá.
-Rætt var um að gamli hefðbundni veggurinn með plast einangrun að innan uppfylli ekki kröfur reglugerða.
-Stór hluti af göllum eru vegna mistaka í hönnun
EE
