www.steinsteypufelag.is
»  Fréttir  »  Létt yfir þrátt fyrir alvarlega stöðu
Létt yfir þrátt fyrir alvarlega stöðu
Sunnudagur, 14. desember 2008

Góð aðsókn, um sjötíu manns var á fund Steinsteypufélagsins um stöðuna á byggingamarkaðnum. Össur Skarphéðinsson Steypumálaráðherra flutti inngangserindið og fór á kostum. Hann blés til sóknar og taldi að menn ættu ekki að vera yfirsvartsýnir.
ossur.JPG

Þrátt fyrir að verið sé að skera niður fjárlög um 50 milljarða er meiningin að setja inn töluverðar upphæðir í fjarfestingar þar sem lögð er áhersla á mannaflsfrekar framkvæmdir. Ljóst sé þó að byggingariðnaðurinn fer ver út úr þeim samdrætti sem framundan er en aðrar greinar. Mikil umræða skapaðist í kjölfar erindis Össurar og greinilegt að byggingamönnum er mikið niðri fyrir og vildu koma því á framfæri við ráðherrann.
Aðrir fyrirlesarar sem komu í kjölfar Steypumálaráðherrans komu fram með ýmis sjónarmið um stöðuna. Sérstaka athygli vöktu mismunandi tölur um fjölda fullbúinna íbúða á lager, allt frá 1200 sem komu fram í máli Árna Jóhannsonar hjá Samtökum iðnaðarins til 3000. Brýnt er fyrir markaðinn að fá á hreint hvaða tala er sú rétta.
Örn Steinar Sigurðsson Verkís sýndi fram á að mikið magn af iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði hefur verið byggt og líklegt er að samdráttur í framkvæmdum milli ára verði gríðarlegur.
Auk umræðu um offramboð er greinilegt að mikið vandamál er með fjármögnun framkvæmda. Hvorki ríki né opinber fyrirtæki fá fjármögnun erlendis frá og því er bitist um innlenda fjármuni. T.d. vill Orkuveitan halda áfram framkvæmdum við virkjanir en fær ekki frekar en aðrir fjármagn. Helgi Leifsson greindi frá að þeir hafa þó ákveðið að halda áfram hönnun og undirbúningi. Fundarmenn voru sammála um að undirbúningi framkvæmda yrði að halda áfram og hann yrði þá vandaðri áður en tekin væri ákvörðun eða framkvæmdir hafnar. Hrólfur Jónsson sagði að Reykjavíkurborg ætlaði að leggja marga milljarða í framkvæmdir ef fjármögnun fæst á viðunandi kjörum. Lögð verði áhersla á mannaflsfrekar framkvæmdir og úr innlendum efnum.
Í máli Kolbeins Kobeinssonar Ístak og Örn Steinars kom fram að ekki er einfalt að sækja á erlenda markaði því þar væri oft mikil samkeppni og tæki tíma að koma sér upp nauðsynlegri þekkingu. Betra að byrja í samstarfi við erlenda aðila.
Sérþekking er gulls ígildi á sama hverju væri. Lögð var áhersla á að framkvæmdir yrðu hvergi stöðvaðar til að ekki tapaðist þekking og reynsla.
EE

Nýlegar fréttir
Gagnlegir tenglar