Steinsteypufélagið hefur á stefnuskrá sinni að veita árlega styrk, einn eða fleiri, til námsmanna sem vinna að lokaverkefnum í tækniháskóla eða að meistara- eða doktorsverkefnum í háskóla.
Áskilið er að verkefnið fjalli um rannsóknir á steinsteypu eða hagnýta notkun steinsteypu, sem a.m.k. að hluta til eru úr íslenskum efnum eða ætluð til notkunar við íslenskar aðstæður.
Hér með er auglýst eftir umsóknum fyrir styrkárið 2008 og skal þeim skilað fyrir 15. janúar 2008 til Steinsteypufélags Íslands með tölvupósti til steinsteypufelag@steinsteypufelag.is.
Í umsókn skal m.a. koma fram nafn umsækjanda, heiti verkefnis ásamt ítarlegri lýsingu, heiti skóla/stofnunar sem verkefnið er unnið við og nafn/nöfn leiðbeinanda.
www.steinsteypufelag.is
