www.steinsteypufelag.is
»  Fréttir  »  Bjarke Ingels Group (BIG) koma á Steinsteypudag 2009
Bjarke Ingels Group (BIG) koma á Steinsteypudag 2009
Laugardagur, 24. janúar 2009

“Fjalla íbúðir” (Mountain dwellings) valið besta íbúðahúsið 2008
Hönnun Bjarke Ingels Group á blokk í Örestad City á Amager fékk verðlaun fyrir besta húsaarkitektúr á ráðstefnunni World Architectural Festival í Barcelona. Blokkin er með 80 íbúðir sem byggðar eru ofan á sex hæða bílageymslu.

mountain dwellings.jpg

Í húsunum sem hafa fjallalagaða lögun er lögð mikil áhersla á birtu og aðgengi að garði. Hönnunin sigraði 80 önnur tilnefnd verk. Í úrslitum allra verkanna sem náðu yfir íbúðabyggingar, skólabyggingar, skrifstofuhúsnæði ofl voru það hins vegar góðkunningjar Steinsteypufélagsins, Grafton arkitektar sem hlutu titilinn World building of the year 2008 fyrir háskólann í Mílanó.

Bjarke Ingels Group hafa þegið boð Steinsteypufélagsins um að kynna hönnun BIG og fjallahúsið á Steinsteypudegi 2009. BIG er orðið eitt af stóru nöfnunum í húsagerðarlist og hafa unnið til fjölmargra verðlaun bæði heima og erlendis.
Það er Thomas Christoffersen arkitekt sem hefur verið þáttakandi og haft umsjón með flestum verkum BIG sem kemur á Steinsteypudag. EE

Nýlegar fréttir
Gagnlegir tenglar