Steinsteypufélagið hefur stofnað starfshóp sem hefur að markmiði að kanna áhrif mismunandi vibratora á eiginleika steypunnar en einnig að meta hve blaut steypa megi vera.
Steinsteypunefnd hefur ákveðið að taka þetta verkefni upp á verkefnalista sinn og einnig ætla BM Vallá og Steypustöðin að styrkja það Verkefnið er þegar komið í gang, mótasmíði lokið og fyrsta tilraunasteypa fer fram í næstu viku.
Hátíðnivibratorar hafa verið að ryðja sér til rúms á síðustu árum. Þeir eru sagðir gefa jafnari steypu og minni aðgreiningu en hefðbundir vibratorar en virðast vera kraftminni. Verkefnið miðar að því að bera þessa vibratora saman.
Sígilt ágreiningsefni á vinnustöðum er hve steypa eigi að vera blaut. Verkefninu er ætlað að nálgast meir hve blaut steypa megi vera án þess að bera skaða.
Fleiri starfshópar eru á teikniborðinu. EE
