Rúmlega 60 manns voru mættir á fund Steinsteypufélagsins og Múrarameistarafélags Reykjavíkur um viðgerðir á steyptum byggingum sem haldinn var í húsakynnum Múrarameistarafélagsins við Skipholt í Rvík.
Helgi Hauksson verkfræðingur á NMÍ, Sverrir Jóhannesson tæknifræðingur og múrari á Eflu og Þórir Magnússon múrari hjá Múrlínu höfðu framsögu en fundarmenn höfðu sig mikið í frammi með spurningum og athugasemdum. Greinilegt er að viðgerðir eru aftur komnar á dagskrá eftir að hafa verið vanræktar í mörg ár. Fundurinn var því góð upprifjun þótt á þessum stutta tíma hafi verið útilokað að gera öllum smáatriðum skil. ee
