Steinsteypufélag Íslands heldur föstudaginn 30. október fund um sement. Fundurinn verður haldinn í Tónlistarhúsinu í Reykjavík.
Í stuttu máli verður farið yfir grundvallaratriði sementsfræða og Kyoto bókunina. Þær sementsgerðir sem eru á markaðnum hér á landi verða kynntar og skeggrætt um stöðu og framtíðarhorfur byggingariðnaðarins.
Boðið verður upp á skoðunarferð um Tónlistarhúsið í lok fundar.

Fundurinn er öllum opinn og þátttökugjald er 3000 kr.
Þátttöku skal tilkynna á netfangið steinsteypufelag@steinsteypufelag.is.
Dagskrá:
Fundarstjórar: Einar Einarsson og Kai Westphal
15:00 Formaður opnar fundinn. (Einar Einarsson BM Vallá)
15:05 Grunnatriði sements (Stefan Kubens NMÍ )
15:20 Kyoto bókunin (Ólafur Wallevik NMÍ)
15:35 Kaffi
15:50 Sementsverksmiðjan (Gunnar Sigurðsson)
16:00 Aalborg Portland (Bjarni Halldórsson)
16:10 Umræður
16:25 Fundi slitið (fundarstjórar loka fundi)
16:30 Skoðunarferð um tónlistarhúsið undir stjórn Tryggva Jónssonar IAV
17:00 Dagskrárlok
Þátttakendur eru minntir á að taka með sér öryggisskó og hjálm fyrir skoðunarferðina
