Nýtt burðarþolsprincip sem er þróað af Kristian Hertz verkfræðing hjá DTU í Danmörku gefur möguleika á ódýrari mannvirkjum.
Mannvirkið er byggt upp af beinagrind úr sterkri forspenntri steypu, með léttsteypu í kring. Þetta létta mannvirki er allt að helmingi léttara en núverandi steypu- og stálbyggingar og þess vegna minnkar kostnaður verulega.

Kristian segir ennfremur að þessi aðferð auðveldi verulega að útbúa boga, hvelfingar og og ýmsar arkitektaæfingar.
Léttsteypan er auk þess meira einangrandi og með betra þol fyrir jarðkjálftum, bruna og sprengingum.
Sérfræðingar eru jákvæðir fyrir þessu nýja efni en telja að það taki tíma fyrir það að öðlast sess.
- Byggt á Ing.dk EE
