Samtals er nú búið að sprengja 4933m eða 95,6 % af heildarlengd Óshlíðarganga. Eftir er aðeins að sprengja 223 m.
Undanfarnar vikur hefur slakt berg hægt verulega á borun en skánandi berg var þó Bolungarvíkurmegin í síðustu viku.

Jarðgöngin liggja milli Ísafjarðarkaupstaðar og Bolungarvíkur og auk ganganna eru byggðar brýr yfir tvær ár og lagning vegar fyrir neðan byggðina í Hnífsdal. Þversnið ganganna er hringlaga og er breidd þeirra um 8,0 m í veghæð en leyfileg hæð ökutækja er 4,2 m. Það er fyrirtækið Ósafl sem er í eigu IAV og svissneska fyrirtækisins Marti sem sér um verkið. Heildarfjöldi starfsmanna sem vinnur að gerð Óshlíðarganga er um 90 manns.
Þó borun sé að ljúka er töluverð vinna eftir við ýmsan frágang og vegagerð. Áætluð verklok eru í júlí 2010.
EE
