Í nýútkominni skýrslu Steinsteypunefndar “Áhrif þjálni og tíðni titrara á einsleitni steypu” sem unnin var í samvinnu við starfshóp Steinsteypufélagsins kom m.a.

• Ef notuð er C25 steypa nást ekki bólur úr yfirborði (sjónsteypa) fyrr en steypan er farin að aðgreina sig.
• Steypa með bólótt yfirborð sem er án steypuhreiðra er í fullkomnu lagi, sérstaklega er frostþolni slíkrar steypu í lagi.
• Grundvallaratriði fyrir vibrun er að hún sé aðlöguð að bleytustigi steypunnar. Þurra steypu þarf að vibra mikið en blauta steypu með sigmál yfir um 23 cm má nánast ekkert vibra ef hún á ekki að aðgreina sig. Í mjög blautri steypu næst fullur styrkur í sívalningum án vibrunar.
• Ef steypa er yfirvibruð kemur fram aðgreining sem veldur miklum sveiflum í eiginleikum. Frostflögnun mældist t.d. tíföld á sumum blettum í slíkum veggjum á við það sem hún er í stöðluðu prófi. Mikil efja safnast í efst í veggjum sem þarf að hreinsast burt.
• Stöðluð sýnataka með sýnatökum gefur ágæta mynd af styrk steypunnar í mannvirkinu.
• Boraðir kjarnar þurfa að vera sérstaklega vel unnir til að þeir gefi raunsanna mynd. Viðmiðun staðla um að þeir þurfi að standa 85% er því eðlileg.
• Svo virðist sem hátíðnivibratorar séu heldur kraftminni en venjulegir vibratorar en þeir hafa heldur minni tilhneigingu til að aðgreina steypuna. Vanda þarf þó val þeirra.
ee
