Gríðarlegur samdráttur er í steypuframkvæmdum á Íslandi ef borið er saman við þensluárin 2007 og 2008. Líklega er nú verið að steypa um 30% af því sem var þá ef marka má orð forstjóra sementsframleiðandanna á fundi hjá Steinsteypufélaginu. Og enginn veit enn hve langt niður steypumagnið fer. Enn eru þó sem betur fer í gangi nokkur verk sem halda lífi í steypumarkaðnum.
Verið er að steypa brú yfir Hvítá þar sem nýlega voru steyptir 1700 m3 í einni lotu, og einnig var í síðustu vikur steypt brúargólf í þverun Vesturlandsvegar við Tungumela. Það er verið að vinna í bílakjallara Tónlistarhússins þar sem framundan eru nokkur þúsund m3 steypur, Helguvíkurálverið hefur verið á hægagangi en gengur samt, stækkun Hellisheiðarvirkjunar er komin af stað og Náttúrfræðihús í Garðabæ og Gagnaver og einnig eru í gangi byggingar fyrir aldraða við Sléttuveg og þjónustu og öryggisíbúðir við Boðaþing. Þá eru ónefnd jarðgöngin í Óshlíð og Héðinsfirði þar sem steypuvinnu lýkur fyrri part árs 2010.
Mörg eru þessi verk komin á seinni hluta svo nauðsynlegt er að ýta nýjum framkvæmdum úr vör svo skakkföll byggingariðnaðarins verði ekki meiri en orðið er og þekking og reynsla tapist. EE
