www.steinsteypufelag.is
»  Fréttir  »  Haraldur Ásgeirsson látinn
Haraldur Ásgeirsson látinn
Fimmtudagur, 26. nóvember 2009

Heiðursfélagi Steinsteypufélagsins, Haraldur Ásgeirsson verkfræðingur er látinn á nítugasta og öðru aldursári. Haraldur var einn fremsti vísindamaður þjóðarinnar í steypufræðum. Hann var einn af þeim sem átti mikinn þátt í því að kveða niður alkalískemmdadrauginn en fyrir framsýni hans hófust rannsóknir á fyrirbyggjandi aðgerðum þegar árið 1967 og tíu árum síðar lá fullkomin vörn fyrir. Engar alkalískemmdir hafa komið fram í steypu síðan 1979. Haraldur ÁSGEIRSSON.jpg

Haraldur var verkfræðingur við atvinnudeild HÍ 1946 til 1960 er hann var ráðinn forstjóri Rb sem hann starfaði við til ársins 1985 er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir.
Fyrir framlag sitt til byggingariðnaðar hlotnaðist Haraldi margs konar heiður. Hann var gerður að heiðursfélaga Steinsteypufélagsins 1981, hlaut riddarakross íslensku fálkaorðunnar árið 1985 og stórriddarakross árið 1999. Gullmerki Verkfræðingafélags Íslands hlaut hann 1986 og var heiðursfélagi 1992. Ítarleg umfjöllun um Harald og störf hans eru í fréttabréfi Steinsteypufélgsins 2008 sem er að finna hér á síðunni.
EE

Nýlegar fréttir
Gagnlegir tenglar