www.steinsteypufelag.is
»  Fréttir  »  Hátíðnivibratorar aðgreina steypu minna
Hátíðnivibratorar aðgreina steypu minna
Laugardagur, 07. nóvember 2009

Í nýútkominni skýrslu Steinsteypunefndar “Áhrif þjálni og tíðni titrara á einsleitni steypu” sem unnin var í samvinnu við starfshóp Steinsteypufélagsins voru m.a. rannsökuð áhrif mismunandi vibratora. Borinn var saman hátíðnivibrator við venjulegan vibrator og athugaður kraftur þeirra og tilhneiging til að aðgreina steypuna. concrete-vibrators-high-cycle-FXA-50A-4_rdax_85x48.gif

Í stuttu máli kom í ljós að hátíðnivibratorinn var heldur kraftminni og þurfti því lengri vibrun til að ná samsvarandi áhrifum en hann hafði einnig heldur minni tilhneigingu til að aðgreina steypunna. Þ.e. það var minni aðgreining við sambærilega þjöppun. En hátíðnivibratorar koma þó ekki í veg fyrir aðgreiningu t.d. ef blaut steypa er of mikið vibruð. Það kom einnig í ljós að á markaðnum eru mismunandi gerðir af hátíðnitorum og velja þarf þá bestu til að einhver árangur sé líklegur. EE

Nýlegar fréttir
Gagnlegir tenglar