Nýlegar rannsóknir íranskra vísindamanna staðfesta að kísilryk eykur mjög þéttleika steypu og er sérstaklega mikilvægt þegar hún fer í sjó og verður fyrir salt og klóráhrifum. Hagkvæmast er að nota 7,5% íblöndun kísilryks af sementsmagni því hærri íblöndun eykur ekki þéttleikann. Í rannsókninni kom auk þess fram að þéttleiki steypu gagnvart klór eykst mikið með aldri steypunnar sérstaklega hjá steypu án kísilryks.

Þessar niðurstöður eru allar í samræmi við þær mælingar sem fengist hafa við rannsóknir í tengslum við Tónlistarhúsið í Reykjavík.
EE
