www.steinsteypufelag.is
»  Fréttir  »  Dauðaslys þegar brú í byggingu hrundi í Andorra
Dauðaslys þegar brú í byggingu hrundi í Andorra
Mánudagur, 09. nóvember 2009

Sex verkamenn létust og sex aðrir slösuðust þegar undirsláttur gaf sig þegar verið var að steypa brú í Andorra. Alls voru um sextíu manns á brúnni þegar hún hrundi og duttu nokkrir þeirra 20 metra niður og aðrir náðu með naumindum að hanga á undirslættinum. brúcollapse.jpg

Allir voru verkamennirnir portúgalskir en brúin er í Massana dalnum í Pyreneafjöllunum. Áður höfðu orðið tvö dauðaslys við byggingu brúarinnar. EE

Nýlegar fréttir
Gagnlegir tenglar