www.steinsteypufelag.is
»  Fréttir  »  Vel sóttur fundur um sement
Vel sóttur fundur um sement
Sunnudagur, 01. nóvember 2009

Fundur Steinsteypufélagsins um sement sem haldinn var í matsal IAV í vinnubúðum við Tónlistarhúsið var vel sóttur og fjörugur. Eftir vel heppnuð erindi þar sem Stefan Kubens fjallaði almennt um sement , Ólafur Wallevik um mengun og Kyoto og Bjarni Halldórsson og Gunnar H Sigurðsson um framleiðslu fyrirtækja sinna, voru líflegar umræður . Þar var rætt m.a. um:

• möguleika á notkun raforku í sementsframleiðslu,
• um brennslu úrgangs í stað kola, þar sem hægt er að slá tvær flugur í einu höggi,
• mismunandi eiginleika þeirra sementsgerða sem eru á markaðnum á Íslandi,
• stöðu sementssölufyrirtækjanna og hættu á því að þessi fyrirtæki hverfi af markaðnum með tilheyrandi tapi á þekkingu og verðmætum. Mjög alvarlega staða er hjá þessum fyrirtækjum því markaðurinn hefur dregist saman og er nú aðeins um 30% af því sem hann var og erfitt er að fá hærri verð í þessu ástandi,
• notkun kísilryks í sement, sem eykur verulega gæði sementsins einkum þar sem eru alkalívirk fylliefni,
• að sement á íslenska markaðnum séu hágæðasement,
• að út frá gæðasjónarmiði geti borgað sig að hafa hægharðnandi sement en markaðurinn vill hið gagnstæða.
• notkun á t.d. beinamjöli í sement sem er ekki í gangi í sementi á Íslandi
Í lok fundar var farið í skoðunarferð um Tónlistarhúsið undir stjórn Tryggva Jónssonar.
ee

Nýlegar fréttir
Gagnlegir tenglar