www.steinsteypufelag.is
»  Fréttir  »  Fjárfesting í steinsteypu vænlegur kostur?
Fjárfesting í steinsteypu vænlegur kostur?
Fimmtudagur, 10. desember 2009

Sala á íbúðarhúsnæði hefur verið mjög treg undanfarin 2 ár. Að meðaltali hefur verið þinglýst ríflega 50 kaupsamningum á viku í ár en að meðaltali var á árunum 2005-2007 þinglýst um 200 samningum. Og í kjölfarið hefur framleiðsla á íbúðarhúsnæði nánast stöðvast því auk sölutregðunnar hefur framleiðsluverðið hækkað og verðið lækkað.
Lengst af hefur verið erfitt að átta sig á þörf fyrir húsnæði á markaðnum því tölur um íbúðir á lager hafa verið á reiki. VSÓ ráðgjöf gaf í sumar út skýrslu yfir framboð íbúðarhúsnæðis og nú hefur hún verið endurútgefin.
nýbygging.jpg

Ljóst virðist af umræðunni að framboðið er túlkað eftir því sem hagsmunirnir liggja. Ýmist talað um offramboð eða að botninum sé náð. En það vekur athygli að að skv. skýrslu VSÓ eru 1850 ónýttar nýjar íbúðir sem eru fokheldar eða lengra komnar á höfuðborgarsvæðinu. Ef miðað er við að ársþörf fyrir nýjar íbúðir sé 1000 til 1500 er aðeins til á lager ársbirgðir af húsnæði sem þó er ekki allt tilbúið. Ef litið er á tímann sem tekur að byggja er þörf á að fara af stað með nýbyggingar innan skamms. Vonandi verður það þó byggt jafnar og skynsamlegar. EE

Nýlegar fréttir
Gagnlegir tenglar