www.steinsteypufelag.is
»  Fréttir  »  Steinsteypuverðlaunin 2010
Steinsteypuverðlaunin 2010
Föstudagur, 18. desember 2009

Tilnefning mannvirkis

Steinsteypufélag Íslands leitar stöðugt nýrra leiða til að vekja athygli á mikilvægi steinsteypu í umhverfi okkar en steinsteypa er helsta byggingarefni Íslendinga. Að frumkvæði Ólafs Walleviks hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur stjórn Steinsteypufélagsins ákveðið að velja steinsteypt mannvirki ársins. Veitt verður viðurkenning fyrir mannvirki þar sem saman fer frumleg og vönduð notkun á steinsteypu í manngerðu umhverfi.

valencia.jpg

Við valið verður haft að leiðarljósi að mannvirkið:
- sé að uppistöðu til úr steinsteypu
- sé framúrskarandi vegna arkitektúrs, verkfræðilegra lausna og handverks
- búi yfir frumleika og endurspegli þekkingu í meðferð og notkun steinsteypu
- auðgi umhverfið, inniberi gæði, glæsileik og nytsemi og sýni augljósan metnað í samhengi við umhverfi sitt
- sé byggt á síðustu fimm árum og í notkun

Viðurkenningin verður veitt mannvirkinu og þeim aðilum sem að því standa, svo sem verkkaupa, hönnuðum og framkvæmdaaðilum. Hún verður afhent í fyrsta sinn á Steinsteypudegi 2010 í febrúar næst komandi.
Tilnefningar ásamt eftirfarandi upplýsingum þurfa að berast nefndinni fyrir 15. janúar 2010:
- heiti mannvirkis
- staðsetning
- verkkaupi
- hönnunarteymi
- framkvæmdaaðili
- framkvæmdaár
- hvenær tekið í notkun
- stutt lýsing á mannvirki, kennistærðir og hlutverk steinsteypu
- myndir

Leitað er eftir tilnefningum frá verk- og tæknifræðingum, arkitektum, listamönnum og iðnaðarmönnum í gegnum samtök þeirra og frá skipulags- og bygginganefndum

Verkið verður valið af starfshópi sem í eiga sæti:
Þorbjörg Hólmgeirsdóttir, formaður, frá Steinsteypufélagi Íslands
Ólafur Wallevik frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Jóhannes Þórðarson frá Listaháskóla Íslands
Björn Marteinsson frá Verkfræðingafélagi Íslands
Þórhallur Sigurðsson frá Arkitektafélagi Íslands

Nýlegar fréttir
Gagnlegir tenglar