www.steinsteypufelag.is
»  Fréttir  »  Rannsókn sannar virkni silanböðunar
Rannsókn sannar virkni silanböðunar
Sunnudagur, 03. janúar 2010

Nýlega var birt niðurstaða vísindamanna frá Kína, Japan og Hong Kong á virkni yfirborðsþekju á vatns- og klórþéttleika steypu. Sérstaklega var athugað hvaða áhrif silanböðun og að bera Natrium silicate þekju hefðu á sprungna steypu. Steypan sem prófuð var, var með v/s tölu 0,68 og styrk 34 MPa . Sýnin voru geymd við útiaðstæður nærri sjó og vatn-eða sjór látinn ganga yfir tvisvar á sólarhring. Mælingar stóðu yfir í ár.

silan og klór umhverfi.jpg

Helstu niðurstöður:
1. Silanböðun ósprunginnar steypu er áhrifarík leið til að þétta hana, og til að seinka því að járn fari að ryðga. Langtímaáhrifin á ósprungna steypu eru mjög háð því hve langt inn í steypuna silanið nær. Skv þessarri rannsókn þarf það að ná 5 mm inn í steypuna.
2. Í sprunginni steypu eru áhrif silans einnig háð því hve langt það gengur inn í steypuna. Járnin ryðguðu ekki fyrir allt að 0,2 mm víðar sprungur.
3. Silan þéttir þó ekki sprungur sem koma eftir að efnið hefur verið borið á nema þær séu mjög litlar (<0,08mm). Járn ryðgar þó mun hægar í steypu sem er þétt í kringum járnin.
4. Að bera Na silicate efni á steypuna eykur ekki vatns- eða klórþéttleika .

Sem sagt er silan mjög áhrifarík leið til að vernda steypu sem er í sjávarumhverfi. Velja þarf silangerð sem gengur sérstaklega vel inn í steypuna. Helst á að bera efnið á þegar allar sprungur eru komnar fram.

Byggt á grein eftir höfundana: Jian-Guo Daia, , , Y. Akirab, F.H. Wittmannc, H. Yokotab and Peng Zhangc .
EE
klór silan ferill.jpg

Nýlegar fréttir
Gagnlegir tenglar