www.steinsteypufelag.is
»  Fréttir  »  Fjölmenni og góð stemning á Steinsteypudegi 2010
Fjölmenni og góð stemning á Steinsteypudegi 2010
Fimmtudagur, 25. febrúar 2010

Mikil aðsókn var að Steinsteypudegi 2010, um 140 manns sem gerir hann líklega að næstfjölsóttasta Steinsteypudegi frá upphafi. Aðeins Steinsteypudagurinn 2008 var fjölmennari.
Veðrlaunaafhending.JPG
Dagskráin var mjög fjölbreytt. Hófst með fyrirlestrum um rannsóknir og steypufræði

þar sem Ólafur Wallevik, Jón Axel Jónsson, Helgi Hauksson og Sigurður Áss Grétarsson fluttu erindi um íblöndunarefni, vibrun, áhrif hörðnunaraðstæðna og steypuprófanir fyrir Landeyjarhöfn. Eftir kaffi var Sigrúnu Sigurhjartardóttur afhent nemendaverðlaunin og hún sagði frá verkefni sínu um prófun á samvirkni ásteypulags og holplatna, Kai Westphal fjallaði um sjónsteypur, Guðni Jónsson um Leiðnisteypur og Steindór Guðmundsson um hljóðhönnun í Tónlistarhúsi.
Steinsteypudagur 2.jpg

Eftir hádegisverð sagði prófessor Kristian Hertz frá ofurléttum byggingum, Leifur Skúlason frá plötu í Bílakjallara í Austurhöfn sem er undir vatnsþrýstingi og Ómar Örn Ingólfsson frá botnrás Ufsarstíflu.
Síðasti liðurinn var síðan umfjöllun um stöðu byggingariðnaðains. Sverrir Bollason greindi frá rannsókn VSÓ ráðgjöf á byggingamarkaðnum og sagði frá að ríflega 1100 íbúðir væru tilbúnar eða langt komnar á Reykjavíkursvæðinu. Síðan voru pallborðumræður með þáttöku iðnaðarráðherra Katrínar Júlíusdóttur, Guðmundar Bjarnasonar forstjóra Íbúðalánasjóðs, Hauks Magnússonar framkvæmdastjóra tæknisviðs ÍAV og Sverris Kristinssonar fasteingasala á Eignamiðlun. Var umræðan líflega og skemmtileg þótt ekki sé hægt að segja að vandamál iðnaðarins hafi verið leyst.
Dagskrá Steinsteypudags endaði síðan með að forseti Íslands afhenti Steinsteypuverðlaunin 2010 fyrir besta mannvirki síðustu fimm ára. Það voru göngubrýr yfir Njarðargötu og Hringbraut sem uðruð fyrir valinu. EE

Steinsteypudagur 3.JPG

Nýlegar fréttir
Gagnlegir tenglar