www.steinsteypufelag.is
»  Fréttir  »  Staða byggingariðnaðarins meðal efnis á Steinsteypudegi 19.febrúar 2010
Staða byggingariðnaðarins meðal efnis á Steinsteypudegi 19.febrúar 2010
Föstudagur, 12. febrúar 2010

Dagskrá Steinsteypudagins er afar fjölbreytt að þessu sinni og ætti að höfða til flestra sem starfa í byggingariðnaðinum. Meðal efnis er:
- Staða byggingariðnaðarins þar sem fram koma tölfræðilegar upplýsingar um byggingamagn og íbúðir í byggingu og á lager og einnig eru umræður með þáttöku m.a. Iðnaðarráðherra og forstjóra Íbúðalánasjóðs
- Ofur – létt mannvirki þar sem notuð er ný tækni sem gerir unnt að létta mannvirki verulega sem eykur hagkvæmni þeirra.
- Steinsteypuverðlaunin 2010 sem veitt eru fyrir besta mannvirki síðustu fimm ára. Það er forseti Íslands sem afhendir verðlaunin.
Auk þess er mikill fjöldi áhugaverðra fyrirlestra um fjölbreytt efni sem tengjast steinsteypu en einnig byggingariðnaðinum í heild.

Með hagræðingu hefur tekist að lækka ráðstefnugjaldið verulega að þessu sinni en einnig gefst þeim sem ekki hafa aðstöðu til að sitja allan daginn möguleiki á ódýrara gjaldi.

Ráðstefnugjald
15.000 heill dagur með hádegismat
12.000 heill dagur án hádegismatar
8.000 hálfur dagur
3.000 nemendur
30.000 fyrir bás og ráðstefnugest

Steinsteypudagur er haldinn á Grand hótel Reykjavík 19.febrúar og hefst dagskrá kl 09:00. Tilkynna skal þáttöku á steinsteypufelag@steinsteypufelag.is.

Dagskrá Steinsteypudagisins í heild er að finna í meðfylgjandi skjali.
Dagskrá

EE

Nýlegar fréttir
Gagnlegir tenglar