Innan Steinsteypufélagsins eru starfandi nokkrir starfshópar sem vinna að mörgum framfaramálum fyrir steypuiðnaðinn :
• Steyptir vegir
• Eiginleikar blautrar steypu
• Mannvirki ársins
• Verklýsingar fyrir steypu
• Þjóðarskjöl við steypustaðalinn
Vinna þessara hópa er misjafnlega langt komin.
Verðlaun fyrir Mannvirki árins verða afhent á Steinsteypudegi 19.febrúar. Þorbjörg Hólmgeirsdóttir, Mannvit, stjórnarmaður í Steinsteypufélaginu hefur veitt hópnum forystu og hefur sér til fulltyngis Jóhannes Þórðarson frá Listaháskólanum, Ólaf Wallevik frá NMÍ, Þórhall Sigurðsson frá Arkitektafélaginu og Björn Marteinsson frá Verkfræðingafélaginu.
Starfshópurinn um steypta vegi fékk ásamt NMÍ styrk frá Vegagerðinni til að vinna að hagkvæmnisútreikningum á steyptum slitlögum samanborðið við malbik. Niðurstaðan var ekki mjög hagstæð steypunni og þegar farið var að rýna í útreikningana var ljóst að valið hafði verið óhagstætt tilfelli fyrir steypuna. Sótt hefur verið um framhaldsstyrk á þessu ári, þar sem lögð verður áhersla á að að finna leiðir til að bæta samkeppnishæfni steypunnar. Hópurinn er undir forystu Ásbjörns Jóhannessonar og Guðmundar Guðmundssonar en auk þeirra eru með Sigursteinn Hjartarson frá Vegagerðinni, Kai Westphal frá Steypustöðinni og Einar Einarsson BM Vallá og Steinsteypufélaginu.
Eins hefur fyrsta skýrsla um eiginleika blautrar steypu verið gerð þar sem fram komu ýmsar athyglisverðar niðurstöður. Sú vinna var einnig unnin af NMÍ, Helga Haukssyni með styrk frá Steinsteypunefnd. Aðrir í hópnum eru Kai Westphal frá Steypustöðinni, Einar Einarsson BM Vallá og Steinsteypufélaginu og Gylfi M Einarsson frá GM Einarsson og Steinsteypufélaginu. Framhald verður unnið á þessu ári.
Björn Hjartarson frá NMÍ, stjórnarmaður í Steinsteypufélaginu er í forsvari fyrir Verklýsingahópinn og er sú vinna að hefjast . Sama á við um hópinn um Þjóðarskjölin. EE
