Steinsteypufélagið heldur í samvinnu við Iðuna laugardaginn 13. mars kl 13 til 20:00 námskeið í meðhöndlun og niðurlögn steypu. Leiðbeinendur verða helstu helstu sérfræðingar á þessu sviði á Íslandi, Karsten Iversen Mannvit, Helgi Hauksson NMÍ og Kai Westphal Steypustöðinni.
Markmiðið er að þáttakendur öðlist skilning á steypu og meðhöndlun hennar og læri réttu vinnubrögðin við hana. Fjallað er um samsetningu og eiginleika steinsteypu, mótavinnu, niðurlögn og móttöku á byggingarstað. Einnig verður fjallað um afleiðingar rangrar meðhöndlunar.
Fullt verð: 16.000 kr en verð til aðila Iðunnar og Steinsteypufélagsins 4000 kr. Þáttökutilkynning þarf að berast fyrir þriðjudag 9.mars.
Þau fyrirtæki eða einstaklingar sem áhuga hefðu á að sækja þetta námskeið eru vinsamlegast beðnir að skrá sig á steinsteypufelag@steinsteypufelag.is.
