Askan frá Eyjafjallajökli hefur sums staðar myndað hellu sem er eins og steypa. Ýmsir hafa því verið að velta því fyrir sér hvort unnt sé að nota öskuna í „alvöru“ steypu. Þessi hugmynd er ekki mjög vitlaus, því víða er verið að nota ösku sem íblöndunarefni í steypu sem svokallaða possolana sem hvarfast við úrgangsefni úr sementsefnahvarfinu. Og gosaskan var einnig notuð af Rómverjum sem blönduðu henni saman við kalk í sínar byggingar fyrir um 2000 árum.

Bragi Ingólfsson efnaverkfræðingur hjá Sementsverksmiðjunni segir "að þó þessi „aska“ geti haft sama efnainnihald og hugsanlega einhverja sömu eiginleika og aska sem myndast við brennslu eldsneytis finnst mér að eigi, að öðru óreyndu, að greina þar á milli og líta á eldfjallaösku sem annan hlut. Ég tel þó ekki ólíklegt að eldfjallaaska sé vel nothæf sem possolan en þó misgóð eftir því hver efnasamsetning hennar er.“ EE
