
Nýjar tölur um verð og sölur á húsnæði í Danmörku benda til að verðið sé byrjað að stíga aftur eftir kreppuástand að undanförnu. Mikilvæg forsenda fyrir þessarri breytingu eru afar lágir vextir. Danir telja að það sé þó of snemmt að segja að kreppunni sé lokið en tölurnar ásamt minna atvinnuleysi bendi til að vorið sé að nálgast.
Þó það styttist eflaust í vorið á íslenskum byggingarmarkaði erum við sjálfsagt eitthvað á eftir Dönum. Það er þó jákvætt að timburinnflutningur jókst fyrstu 2 mánuði árins mv það sem var á árinu 2009. EE
