Helgi Steinar Karlsson, Sigurður Heimir Sigurðsson og Viðar Guðmundsson múrarameistarar hafa tekið höndum saman um að berjast fyrir notkun á múrverki og innlendri framleiðslu í byggingum á Íslandi.

Á dögunum voru þeir með kynningu á filtun sem þeir hafa verið að prófa m.a. á gifsplötur. Þannig geti sementsbundið efni tekið að nokkru við af sandsparsli sérstaklega á grófari stöðum þar sem er meiri áraun t.d. göngum í fjölbýlishúsum. Einnig eru múrarameistararnir að beita sér fyrir hús séu múruð að innan og utan og notaðar gömlu góðu íslensku milliveggjaplöturnar í stað innfluttrar klæðningar. EE
