Að vanda var fámennt en góðmennt á aðalfundi Steinsteypufélagsins sem haldinn var í fundarsal BMVallá ehf þann 28.maí síðastliðinn.
Í skýrslu stjórnar kom fram að starfsemi félagsins hafi verið blómleg á síðasta starfsári
en toppurinn líklega ótrúlega vel heppnaður Steinsteypudagur í miðri kreppunni og ágætisblað sem kom út í febrúar. En starfsemi félagsins var fjölbreytt, fundir, starfshópar, útgáfustarfsemi og norrænt samstarf ofl.
Þrátt fyrir erfitt ástand tókst að halda peningamálum félagsins í jafnvægi og var hagnaður af síðasta ári eins og þeim síðustu. Það hjálpar félaginu að vera algjörlega skuldlaust og reyndar aðeins betur því það á örlitla fjármuni sem hjálpar til að mæta hugsanlegum óvæntum útgjöldum.
Á aðalfundinum gekk aðeins einn úr stjórn, formaður félagsins Einar Einarsson BM Vallá sem víkur vegna reglunnar um að enginn megi sitja í stjórn meira en fjögur ár samfellt. Í hans stað var kosinn kollegi hans hjá BM Vallá, Ari Sigfússon. Aðrir í stjórn eru Þorbjörg Hólmgeirsdóttir, Björn Hjartarson, Gylfi M. Einarsson og Jón Möller auk Indriða Níelssonar framkvæmdastjóra.
Vegna ágætrar stöðu félagsins var ekki ákveðið að hækka félagsgjöld einstaklinga, engar lagabreytingar voru samþykktar og Vifill Oddsson og Kristján Sveinsson voru kosnir skoðunarmenn ársreikninga.
Ýmsar gagnlegar umræður urðu undir liðnum önnur mál m.a. um notkun á vefsíðu félagsins, norrænt samstarf ofl.
EE
