www.steinsteypufelag.is
»  Fréttir  »  Bætir aska úr Eyjafjallajökli eiginleika steinsteypu?
Bætir aska úr Eyjafjallajökli eiginleika steinsteypu?
Miðvikudagur, 02. júní 2010

Efnasamsetning gosöskunnar úr Eyjafjallajökli er svipuð og ösku sem fellur til við kolabrennslu, en hún er víða notuð til að bæta eiginleika steinsteypu. Starfsfólk Rannsóknarstofu Verkfræðistofu MANNVITS sá því tækifæri til að kanna hvort askan úr eldgosinu gæti nýst sem bætiefni í steinsteypu
Mynd frá Þorvaldseyri.JPG

eins og áðurnefnd kolaaska (flyash á ensku), en hún er nýtt að takmörkuðu leyti hér á landi, m.a. vegna hás flutningskostnaðar.
Aska úr Eyjafjallajökli er glerkennd og rík að kísilsýru og má ætla að hún sé búin svokölluðum Pozzolan eiginleikum. Því þótti mjög áhugavert að kanna þessa eiginleika hennar með tilliti til steypugerðar.
Sjá greins Karstens Iversen og Börge Jóhannes Wigum , verkfræðistofunni Mannvit í heild undir flipanum Greinar og viðtöl.
EE

Nýlegar fréttir
Gagnlegir tenglar