www.steinsteypufelag.is
»  Fréttir  »  Námskeið í niðurlögn og meðhöndlun steypu
Námskeið í niðurlögn og meðhöndlun steypu
Mánudagur, 18. október 2010

Föstudaginn 22. október kl 8:30 til 12:30 heldur Steinsteypufélag Íslands námskeið í meðhöndlun og niðurlögn steypu. Leiðbeinendur verða helstu sérfræðingar á þessu sviði á Íslandi. Námskeiðið er haldið á Nýsköpunarmiðstöð Íslands og er opið öllum en einkum ætlað þeim sem meðhöndla steypuna á byggingastöðum.

Markmiðið er að þáttakendur öðlist skilning á steypu og meðhöndlun hennar og læri réttu vinnubrögðin. Þetta mun stuðla að betri gæðum og meiri hagkvæmni steyptra mannvirkja auk þess sem að gefa bæði almennum og faglærðum byggingamönnum tækifæri til starfsmenntunar.

DAGSKRÁ:
Helstu atriði sem farið verður yfir:
• Samsetning og eiginleikar. Mótavinna. Karsten Iversen, Mannvit
• Móttaka steypu á byggingarstað og niðurlögn hennar. Kai Westphal, Steypustöðin
• Eftirmeðhöndlun, vetrarsteypur og afleiðingar rangrar meðhöndlunar. Helgi Hauksson, Nýsköpunarmiðstöð Íslands
• Sýnikennsla í meðhöndlun og mati á steypu

Námskeiðsgjald er 10.000 kr.
Fyrirtæki geta sótt um allt að 75% styrk til starfsmenntasjóða fyrir þá starfsmenn sem eru í stéttarfélögum sjóðanna.
Steinsteypufélagið getur séð um þessar umsóknir fyrir fyrirtækin.
Þau fyrirtæki eða einstaklingar sem áhuga hefðu á að sækja þetta námskeið eru vinsamlegast beðnir að skrá sig á steinsteypufelag@steinsteypufelag.is

Nýlegar fréttir
Gagnlegir tenglar