Á fundi Steinsteypufélags Íslands sem haldinn var í samvinnu við Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Íbúðalánasjóð á miðvikudag í síðustu viku komu saman almennir húseigendur og fagaðilar innan byggingariðnaðarins á námskeiði sem sneri að mikilvægi reglubundins viðhalds á þeim verðmætum sem liggja í fasteignum landsmanna.
Námskeiðið Viðhald og verðmæti hefur verið haldið á þremur stöðum um landið nú á haustmánuðum undir forystu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands í samvinnu við Íbúðalánasjóð og fleiri fagaðila í byggingariðnaðinum.
Miðvikudaginn 24. nóvember var komið að því að halda námskeiðið fyrir alla húseigendur á Suðurlandi með mjög góðum árangri.
Aðsóknarmet voru slegin er hátt í 250 einstaklingar mættu á Grand Hótel Reykjavík til að hlýða á erindi um þak- og veggklæðningar, glugga, steypuskemmdir, raflagnir, raka og myglu svo fátt eitt sé nefnt. Nýr framkvæmdarstjóri Íbúðarlánasjóðs, Sigurður Erlingsson, og forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar buðu þátttakendur velkomna og komu meðal annars inn á mikilvægi samstarfs- og átaksverkefna sem miða að því að hvetja til framkvæmda og örva atvinnusköpun.
