Steinsteypufélag Íslands í samvinnu við Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Íbúðalánasjóð býður öllum húseigendum á stór höfuðborgarsvæðinu og í nærliggjandi sveitarfélögum á opið námskeið um viðhald og verðmæti fasteigna. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem standa nú þegar í viðhaldi á eignum sínum eða hafa hug á að hefja framkvæmdir.
Viðhald og verðmæti er samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar og Íbúðalánasjóðs auk Steinsteypufélags Íslands við sérfræðinga frá verkfræðistofum, Orkusetrinu, Rafiðnaðarskólanum, Húsi og heilsu, Iðunni - fræðslusetri og heimamenn í hverjum landshluta fyrir sig.
Námskeiðið verður haldið miðvikudaginn 24. nóvember frá kl. 14:00 - 18:00 á Grand Hótel Reykjavík.
Dagskrá námskeiðs
Kl. 14:00 Forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Þorsteinn Ingi Sigfússon, býður gesti velkomna
Kl. 14:20 Gluggar: Jón Sigurjónsson, Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Kl. 14:40 Steyptir veggir: Helgi Hauksson, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Steinsteypufélag Íslands
Kl. 15:00 Vegg- og þakklæðningar: Jón Sigurjónsson, Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Kl. 15:20 Kaffi og tengslatorg
Kl. 15:40 Raflagnir: Stefán Sveinsson, Rafiðnaðarskólinn
Kl. 16:00 Raki og mygla í húsum: Sylgja D. Sigurjónsdóttir, Hús og heilsa
Kl. 16:20 Endurmenntun fyrir viðhaldsverkefni : Ólafur Ástgeirsson, IÐAN - fræðslusetur
Kl. 16:30 Kaffi og tengslatorg
Kl. 16:50 Skipulagning viðhaldsverka: Sverrir Jóhannesson, Efla
Kl. 17:10 Allir vinna - hvatningarátak
Kl. 17:30 Orkunýting og sparnaður: Sigurður Ingi Friðleifsson, Orkusetur
Fundarstjóri: Magnús Sædal Svavarsson, byggingarfulltrúi í Reykjavík og formaður félags byggingarfulltrúa
Tengslatorg
Á tengslatorgi veita fjölmargir iðnmeistarar, verkfræðistofur, bankar og þjónustuaðilar í byggingariðnaði upplýsingar, fræðslu og ráðgjöf um allt sem lýtur að viðhaldi, endurbótum á húsnæði og að auknum lífsgæðum á heimilum og vinnustað. Þar kemst hinn almenni húseigandi í kynni við sérfræðinga og getur í framhaldinu nýtt ný tengsl sem hvatningu og aðstoð til framkvæmda.
Skráning á www.nmi.is
Aðgangur ókeypis
