www.steinsteypufelag.is
»  Fréttir  »  STEINSTEYPUVERÐLAUNIN 2011 - Tilnefning mannvirkis
STEINSTEYPUVERÐLAUNIN 2011 - Tilnefning mannvirkis
Þriðjudagur, 28. desember 2010

Steinsteypufélag Íslands leitast stöðugt við að vekja athygli á mikilvægi steinsteypu í umhverfi okkar enda steinsteypa helsta byggingarefni Íslendinga. Stjórn félagsins hefur ákveðið að velja steinsteypt mannvirki ársins öðru sinni. Veitt verður viðurkenning fyrir mannvirki þar sem saman fer frumleg og vönduð notkun á steinsteypu í manngerðu umhverfi.

Hringbraut02.jpg

Við valið verður haft að leiðarljósi að mannvirkið:
- sýni steinsteypu á áberandi hátt
- sé framúrskarandi vegna arkitektúrs, verkfræðilegra lausna og handverks
- búi yfir frumleika og endurspegli þekkingu í meðferð og notkun steinsteypu
- auðgi umhverfið, inniberi gæði, glæsileik og nytsemi og sýni augljósan metnað í samhengi við umhverfi sitt
- sé byggt á síðustu fimm árum og í notkun

Viðurkenningin verður veitt mannvirkinu og þeim aðilum sem að því standa, svo sem verkkaupa, hönnuðum og framkvæmdaaðilum. Hún verður afhent á Steinsteypudegi 18. febrúar 2011.

Verkið verður valið af starfshópi sem í eiga sæti:
Þorbjörg Hólmgeirsdóttir, formaður Steinsteypufélag Íslands
Ólafur Wallevik Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Jóhannes Þórðarson Listaháskóli Íslands
Björn Marteinsson Verkfræðingafélag Íslands
Jóhann Einarsson Arkitektafélag Íslands

Leitað er eftir tilnefningum frá verk- og tæknifræðingum, arkitektum, listamönnum og iðnaðarmönnum í gegnum samtök þeirra og frá skipulags- og bygginganefndum.
Hér með er óskað eftir því að viðtakandi þessa bréfs tilnefni steinsteypt mannvirki sem er þess verðugt að fá þessa viðurkenningu. Nánari upplýsingar eru á vef Steinsteypufélagsins http://steinsteypufelag.is/.
Óskað er eftir því að tilnefningar berist formanni félagsins, netfang thh@mannvit.is, fyrir 21. janúar 2011.

Tilnefningum fylgi eftirtalin gögn:
- heiti mannvirkis og staðsetning
- verkkaupi
- hönnunarteymi
- framkvæmdaaðili og - framkvæmdaár
- hvenær tekið í notkun
- stutt lýsing á mannvirki, kennistærðir og hlutverk steinsteypu
- ljósmyndir og / eða myndbönd (teikningar óþarfar)
Nefndin áskilur sér rétt til að meta mannvirki á innsendum gögnum eingöngu.

Nýlegar fréttir
Gagnlegir tenglar