www.steinsteypufelag.is
»  Fréttir  »  Mistök vegna útsendingu greiðsluseðla
Mistök vegna útsendingu greiðsluseðla
Mánudagur, 17. janúar 2011

Þau leiðu mistök áttu sér stað að Arion banki sendi út árgjald til einstaklinga með röngu sniði.
Þessi mistök voru lagfærð um leið og þau uppgötvuðust. Biðjum við félagsmenn okkar alla innilega afsökunar á þessum mistökum.
Arion banki mun senda afsökunarbréf til allra þeirra er fengu greiðsluáskorun.

Árgjald einstaklinga sem og fyrirtækja hefur ávallt verið í formi valkröfu, sem þýðir það að Steinsteypufélagið mun aldrei senda út greiðsluáskorun vegna árgjalds.
Steinsteypufélag Íslands gæti ekki sinnt skyldum sínum án stuðnings og góðvildar félagsmanna okkar og fyrirtækja. Það er félaginu nauðsynlegt að viðhalda góðum og tíðum samskiptum við alla í steinsteypuiðnaðinum.

f.h. Steinsteypufélags Íslands
Indriði Níelsson

Nýlegar fréttir
Gagnlegir tenglar