www.steinsteypufelag.is
»  Um félagiđ  »  Lög félagsins
Lög félagsins

Lög Steinsteypufélags Íslands


1. Nafn félagsins er Steinsteypufélag Íslands.

Félagiđ er samtök einstaklinga, fyrirtćkja, félaga og stofnana, sem áhuga hafa á steinsteypu sem og öđrum sementsbundnum efnum.

2. Tilgangur félagsins.
Tilgangur félagsins er auka veg steinsteypunnar og stuđla ađ hagnýtri og / eđa frćđilegri ţróun á sviđi steinsteypu og steinsteyputćkni á Íslandi.
Starfsemi félagsins felur m.a. í sér ađ:
1. Skipuleggja fyrirlestra og námskeiđ, gefa út frćđslurit og kynna nýjungar.
2. Stuđla ađ rannsóknum og tćknilegum umbótum á sviđi steinsteypu og sementsbundinna efna.
3. Stuđla ađ aukinni hćfni og menntun međal ţeirra sem hanna, framleiđa og vinna međ sementsbundin efni.
4. Vera vettvangur fyrir umrćđur, skođanaskipti og upplýsingastreymi.
5. Taka ţátt í norrćnu og alţjóđasamstarfi á ţessu sviđi.

3. Félagar.
Félagar geta orđiđ:
1. Einstaklingar
2. Fyrirtćki, félög og stofnanir

Skráning í félagiđ er hjá framkvćmdastjóra svo og stjórnarmönnum.

4. Ađalfundur.
Ađalfundur hefur ćđsta vald í málefnum félagsins. Hann skal halda í maímánuđi ár hvert. Ađalfund skal bođa međ minnst einnar viku fyrirvara međ auglýsingu á opinberum vettvangi, ţar sem dagskrá fundarins er tilkynnt. Međ dagskrá skal kynna tillögur um lagabreytingar og ađrar tillögur sem ţurfa samţykki ađalfundar. Tillögur sem félagsmenn hyggjast leggja fyrir fundinn, skulu berast stjórn fyrir 15. apríl. Ađalfundur telst löglegur, ef löglega er til hans bođađ. Á dagskrá ađalfundar skulu a.m.k. vera eftirfarandi málefni:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Skýrsla gjaldkera og samţykkt reikninga.
3. Lagabreytingar.
4. Kosning stjórnarmanna skv. 5. grein.
5. Kosning tveggja skođunarmanna ársreikninga.
6. Ákvörđun félagsgjalda fyrir einstaklinga.
7. Önnur mál.

Til ţess ađ lagabreytingar öđlist gildi ţarf samţykki 2/3 hluta greiddra atkvćđa. Meirihluti fundarmanna rćđur afgreiđslu annarra mála. Tillaga fellur á jöfnum atkvćđum.

Félagar hafa eitt atkvćđi hver á ađalfundi. Félög, stofnanir og fyrirtćki skulu tilnefna skriflega einn fulltrúa sem fer međ atkvćđi ţeirra.

Reikningsár félagsins er almanaksár.

5. Stjórn félagsins.
Stjórn félagsins rćđur málefnum félagsins milli ađalfunda. Stjórnin skal skipuđ 5 félagsmönnum sem kosnir eru á ađalfundi til tveggja ára. Hverju sinni skulu ţó ekki fleiri en tveir menn ganga úr stjórn. Stjórnarmađur skal ekki sitja í stjórn lengur en fjögur ár í senn. Stjórnin skal svo framarlega sem ţess er kostur ţannig skipuđ, ađ jafnrćđis sé gćtt milli félagsmanna m.t.t. mismunandi faglegs bakgrunns. Stjórnina skipa formađur, varaformađur, ritari, og tveir međstjórnendur. Stjórnarmenn skipta međ sér verkum á fyrsta stjórnarfundi eftir ađalfund. Stjórnarstörf eru ólaunuđ.
Stjórninni er heimilt ađ ráđa framkvćmdastjóra og semja viđ hann um laun. Framkvćmdastjóri sér m.a. um daglegan rekstur félagsins og er jafnframt gjaldkeri ţess.

Ţegar um meiri háttar ákvarđanir er ađ rćđa, t.d. fjárhagslegs eđlis, er stjórn skylt ađ bođa til félagsfundar og skal til hans bođađ á sama hátt og ađalfundar. Einfaldur meirihluti atkvćđa rćđur úrslitum í atkvćđagreiđslu á slíkum fundi. Tillaga fellur á jöfnum atkvćđum.

6. Félagsgjöld.
Ákvörđun um upphćđ félagsgjalda einstaklinga er tekin á ađalfundi. Fyrirtćki, félög og stofnanir greiđa félagsgjöld, sem í hverju tilfelli ákvarđast í samkomulagi viđ stjórnina.

7. Annađ.
Tillaga um ađ leggja félagiđ niđur eđa slíta ţví, ţarf ađ samţykkja á tveimur ađalfundum í röđ til ađ öđlast gildi. Gerist ţađ skulu eignir félagsins renna til Háskóla Íslands, Tćkniskóla Íslands eđa annarra sambćrilegra mennta- og/eđa rannsóknastofnana skv. nánari ákvörđun stjórnar.


Samţykkt á ađalfundi 27.04. 1981.
Breytt á ađalfundi 22.05. 1996.
Breytt á ađalfundi 30.05. 2001.