www.steinsteypufelag.is
»  Um félagið  »  Styrkveitingar
Styrkveitingar

Styrkur til námsmanna sem vinna að lokaverkefnum á sviði steinsteypu.

Steinsteypufélag Íslands stefnir að því að veita árlega 1-2 styrki til námsmanna, sem vinna að lokaverkefnum í tækniskóla eða að meistara- eða doktorsverkefnum í háskóla. Áskilið er, að verkefnið fjalli um grunnrannsóknir á steinsteypu eða rannsóknir tengdar notkun steinsteypu, sem a.m.k. að hluta til eru úr íslenskum efnum eða ætluð til notkunar við íslenskar aðstæður.

Umsóknum skal skilað fyrir 15. janúar ár hvert, til Steinsteypufélags Íslands, á tölvupósti til steinsteypufelag@steinsteypufelag.is

Í umsókn skal m.a. koma fram nafn umsækjanda, heiti verkefnis ásamt ítarlegri lýsingu, heiti stofnunar sem verkefnið er unnið við og nafn/nöfn leiðbeinanda.

Frekari upplýsingar veitir Indriði Níelsson á steinsteypufelag@steinsteypufelag.is

Styrkþegar Steinsteypufélags Íslands:
* Pálmi Þór Sævarsson, HR árið 2009
Heiti verkefnis: Skrið steypu og áhrif þess á burðarvirkjahönnun
*Helgi Bárðarson, árið 2009
Heiti verkefnis: Greining og hönnun mannvirkja á jarðskjálftasvæði
* Helgi Sigursteinn Ólafsson, HR árið 2008
Heiti verkefnis:Brúargólf úr einingum
* Grettir Adolf Haraldsson, HR árið 2008
Heit verkefnis: Bitar bentir með FRP stöngum
*Kristinn L. Guðmundsson, HÍ 2007
Heiti verkefnis: Áhrif fylliefna á eiginleika steinsteypu
* Elín Ríta Sveinbjörnsdóttir, árið 2006.
Lokaverkefni til B.Sc í byggingatæknifræði við Háskólann í Reykjavík
Heiti verkefnis: Alkalívirkni steinsteypu - nýjar prófunaraðferðir.
* Erla Margrét Gunnarsdóttir, árið 2006.
Lokaverkefni til B.Sc í byggingatæknifræði við Háskólann í Reykjavík
Heiti verkefnis: "Áhrif thixótrópíu á mótaþrýsting í sjálfútleggjandi steypu" eða "Stabilizers as Mean to Reduce Form Pressure by Increasing Thixotropy in SCC" en verkefnið er skrifað á ensku.
* Guðbjartur Jón Einarsson, árið 2006.
Lokaverkefni til B.Sc. í byggingatæknifræði við Háskólann Í Reykjavík.
Heiti verkefnis: Um notkun trefjasteypu í burðarkerfi veðrunarkápu forsteyptra útveggjaeininga.
* María Dís Ásgeirsdóttir, árið 2004.
Lokaverkefni til B.Sc í byggingatæknifræði við Tækniháskóla Íslands
Heiti verkefnis: "Hraðvirkt múrstrendingapróf ásamt samvirkni frost/þýðu og alkalivirkni"
* Kári Steinar Karlsson, árið 2004.
Meistaraverkefni við Háskóla Íslands
Heiti verkefnis: "Ólínuleg burðargreining á þriggja hæða skúfveggja byggingu"
*
Þórður Sigfússon, árið 2000.
Meistaraverkefni við Háskóla Íslands
Heiti verkefnis: Ólínuleg greining á jarðskjálftastyrk steinsteyptra skerveggja